Fréttir

Vorgleði Þingeyjarskóla 26. apríl kl. 20:00

Vorgleði Þingeyjarskóla árið 2022 verður haldin í Ýdölum þann 26. apríl kl. 20:00
Lesa meira

Skuggakosning í Þingeyjarskóla - Nafnið Þingeyjarsveit með flest atkvæði nemenda.

Nemendur Þingeyjarskóla héldu Skuggakosningu um nafn á nýju sameinuðu sveitarfélagi Skútustaðarhrepps og Þingeyjarsveitar. Kosið var um fjögur nöfn; Goðaþing, Laxárþing, Suðurþing og Þingeyjarsveit. Kjörsókn var 90%. Á kjörskrá voru 71 nemandi við skólann og kusu 64. Gildir seðlar voru 64. Enginn ógildur seðill. Úrslit urðu þau að Þingeyjarsveit hlaut 32 atkvæði eða 50% greiddra atkvæða. Laxárþing hlaut 19 atkvæði Suðurþing hlaut 7 atkvæði Goðaþing hlaut 6 atkvæði Kjörnefnd var að störfum og voru það nemendur af unglingastigi sem skipuðu hana. Komið var upp kjörklefum og blásið til kjörfundar í félagsheimilinu Ýdölum. Framkvæmdin tókst að öllu leyti mjög vel og óhætt að hrósa þessum öflugu unglingum Þingeyjarskóla fyrir framkvæmdina.
Lesa meira

Frábært útisvæði (smellið fyrir fleiri myndir)

Við í Barnaborg erum svo heppin með útisvæðið okkar. Einstaka gervigíga rétt hjá leikskólanum og fallegt landslag. Svo erum við vel sett með leiktæki.
Lesa meira

Leikskóladeildin Krílabær auglýsir eftir starfsmanni.

Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í 50% starf við leikskóladeildina Krílabæ á Laugum í Reykjadal. Smellið á fyrirsögnina fyrir frekari upplýsingar
Lesa meira

Allt skólahald fellur niður mánudaginn 7. febrúar.

Í ljósi veðurviðvarana og tilmæla frá Almannavörnum fellur allt skólahald Þingeyjarskóla niður á morgun, mánudaginn 7. febrúar. Þ.e. starf leikskóla-, grunnskóla- og tónlistardeilda. Kveðja góð. Skólastjóri
Lesa meira

Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólakennurum.

Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólakennurum við leikskóladeildina Barnaborg.
Lesa meira

Haustgleði Þingeyjarskóla

Lesa meira

Skóladagatal grunnskóladeildar Þingeyjarskóla

Skóladagatal grunnskóladeildar Þingeyjarskóla er nú aðgengilegt hér á vefnum í gegnum flýtiflipa á forsíðu eða með því að nota slóðina: https://www.thingeyjarskoli.is/static/files/skoladagatal/skoladagatal-2021-2022b.pdf
Lesa meira

Didda í eldhúsinu hættir störfum við Þingeyjarskóla eftir áratuga starf við skólann.

Kristjana Helgadóttir matráður eða Didda í eldhúsinu e.o. við flest köllum hana, hættir núna í vor eftir áratuga starf við stofnunina. Kristjana hóf störf við stofnun þáverandi Hafralækjarskóla haustið 1972 og hefur starfað nánast óslitið við skólann allar götur síðan. Þannig að segja má að Didda hafi verið samofin sögu skólans frá upphafi eða í þessi 49 ár sem skóli hefur verið starfræktur á Hafralæk. Það hlýtur að vera nánast einsdæmi.
Lesa meira

Tvö spennandi störf auglýst hjá Þingeyjarskóla

Þingeyjarskóli auglýsir tvö spennandi störf laus til umsóknar: Starfsmaður í leikskóladeildinni Krílabæ á Laugum í Reykjadal og stuðningsfulltrúi í grunnskóladeild Þingeyjarskóla á Hafralæk í Aðaldal. Umsóknarfrestur fyrir bæði störf er 25. júní 2021.
Lesa meira