Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni við leikskóladeildina Krílabæ

Þingeyjarskóli í Þingeyjarsveit auglýsir eftir leikskólakennara/leikskólastarfsmanni í 50-60% starf við leikskóladeildina Krílabæ á Laugum í Reykjadal. 

Staðan er áætluð frá og með 1. janúar 2023.

 

Við leitum að starfsmanni sem: 

 

 

  • Treystir sér í faglega og metnaðarfulla vinnu 
  • Er lausnamiðaður
  • Er sveigjanlegur og með góða samskiptahæfni 
  • Er sjálfstæður í vinnubrögðum og sýnir/býr yfir frumkvæði 
  • Hefur metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni 
  • Vill taka þátt í samstarfi og teymisvinnu 
  • Ber virðingu fyrir börnum og hefur áhuga á að starfa með þeim

 

Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega 30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum.  Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og örvar þroska þeirra.

Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.   

Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð. 

Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um. 

 

Umsóknarfrestur er til 1. desember 2022.  

 

Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is

 

Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is  eða Birna Óskarsdóttir deildarstjóri Krílabæjar í vs. 4643315/8420050 eða í gegnum netfangið birnao@thingeyjarskoli.is