- Fréttir
- Skólinn
- Grunnskóladeild
- Leikskóladeild Barnaborg
- Leikskóladeild Krílabær
- Tónlistardeild
- Nemendur
Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólastarfsmanni í afleysingar og/eða í framtíðarstarf.
Þingeyjarskóli auglýsir eftir skólaliða í 80 – 100% starf.
Við leitum að starfsmönnum sem:
Treysta sér í faglega og metnaðarfulla vinnu
Eru lausnamiðaðir
Eru sveigjanlegir og með góða samskiptahæfni
Eru sjálfstæðir í vinnubrögðum og sýna/búa yfir frumkvæði
Hafa metnað til að takast á við ný og spennandi verkefni
Vilja taka þátt í samstarfi og teymisvinnu
Bera virðingu fyrir börnum og hafa áhuga á að starfa með þeim
Þingeyjarskóli er samrekinn leik-, grunn- og tónlistarskóli með rétt um 100 nemendur. Þar af tæplega
30 leikskólanemendur á tveimur starfsstöðvum. Áhersla er lögð á teymisvinnu og fjölbreytta
kennsluhætti innan skólans sem og að skapa leik- og námsumhverfi sem auðgar bernsku barna og
örvar þroska þeirra.
Lögð er áhersla á samvinnu og sameiginlega ábyrgð starfsmanna á verkefnum skólans.
Gerðar eru kröfur um mikla hæfni í mannlegum samskiptum, stundvísi og hreint sakavottorð.
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Umsóknir skulu sendast á netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is
Nánari upplýsingar veitir Jóhann Rúnar Pálsson skólastjóri í vs 4643580 /8990702 eða í gegnum
netfangið johannrunar@thingeyjarskoli.is