Um Barnaborg

Leikskólinn Barnaborg er um 25 - 30 barna leikskóli, til húsa í suðurenda Þingeyjarskóla í Aðaldal.

Börn á aldrinum eins til sex ára eiga vistun í Barnaborg. Leikskólastarfið byggir á lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla 2011 og skólastefnu Þingeyjarsveitar.

Leikskólastarfið er byggt í kringum frjálsan leik barnanna með áherslu á útiveru, náttúruna, sköpun með fjölbreyttan efnivið og allt það nám sem fram fer í samskiptum barnanna, hvert við annað og hina fullorðnu.

Leikskólinn vinnur náið með grunnskóladeild Þingeyjarskóla um samfellu milli skólastiga og tónlistar- og íþróttakennslu fyrir börnin.

Í leikskólanum vinna 9 starfsmenn við umönnun barnanna

Leikskólastjóri er Nanna Marteinsdóttir. Verkefnastjóri yngri barna er: Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir