- Fréttir
- Deildir skólans
- Grunnskóladeild
- Leikskóladeild Barnaborg
- Leikskóladeild Krílabær
- Tónlistardeild
- Nemendur
Leikskólinn Barnaborg er um 25 barna leikskóli, til húsa í suðurenda Þingeyjarskóla í Aðaldal.
Börn á aldrinum eins til sex ára eiga vistun í Barnaborg. Leikskólastarfið byggir á lögum um leikskóla, Aðalnámskrá leikskóla 2011 og skólastefnu Þingeyjarsveitar.
Leikskólastarfið er byggt í kringum sjálfsprottinn leik barnanna með áherslu á útiveru og sköpunarferli með fjölbreyttan efnivið.
Leikskólinn vinnur náið með grunnskóladeild Þingeyjarskóla um samfellu milli skólastiga og tónlistar- og íþróttakennslu fyrir börnin.
Í leikskólanum vinna 10 starfsmenn við umönnun barnanna, í móttökueldhúsi og við þrif.
Leikskólastjóri með deildarstjórn er Nanna Marteinsdóttir. Verkefnastjóri yngri barna er: Ásta Margrét Rögnvaldsdóttir