- Fréttir
- Deildir skólans
- Grunnskóladeild
- Leikskóladeild Barnaborg
- Leikskóladeild Krílabær
- Tónlistardeild
- Nemendur
Þegar barn byrjar í leikskóla er það stór stund í lífi þess og foreldranna. Aðlögun er sá tími þegar barn kynnist kennurum, öðrum börnum og húsakynnum skólans. Aðlögun er ekki einungis ætluð fyrir börnin heldur einnig sem tími fyrir foreldra og kennara til að kynnast og virða fyrir sér uppeldisaðferðir heima og í skólanum. Í Barnaborg er stuðst við svokallaða þáttökuaðlögun og er foreldri með barninu í leikskólanum í 3 daga. Nánar um þátttökuaðlögun
Klæðnaður barna þarf alltaf að vera í samræmi við veðurfar og nauðsynlegt er að hafa aukafatnað og þann hlífðarfatnað til útiveru sem barnið hugsanlega þarf að nota hverju sinni. Mikilvægt er að merkja föt barnanna því þannig komast þau best til skila. Gott er að hafa í huga að skólinn er vinnustaður barnanna og því er betra að hafa þau í fötum sem mega verða fyrir hnjaski. Foreldrar eru vinsamlega beðnir að taka til að morgni þau föt sem áætluð eru þann daginn því það auðveldar börnunum að taka til þau föt sem þau fara í út og þannig geta þau betur klætt sig sjálf. Blaut eða skítug föt skal taka með heim í dagslok. Í vikulok skal tæma bæði hólf og skógrindur svo hægt sé að þrífa vel forstofur skólans.
Til útprentunar um fatnað leikskólabarna
Leikskólinn er ætlaður frískum börnum. Veikist barn skal það dvelja heima þar til það hefur verið hitalaust í a.m.k. 1-2 sólarhringa. Hafa skal í huga að hiti er ekki eina merki veikinda. Ef barni virðist líða illa er ástæða til að meta hvort það sé nógu frískt til að takast á við daginn utan eigin heimilis. Ef um langvarandi eða síendurtekin veikindi er að ræða þar sem barn missir mjög mikið úr leikskólanum reynum við að koma til móts við barnið hvað varðar inniveru eftir þau veikindi svo framarlega sem aðstæður í skólanum leyfi slíkt.
Nauðsynlegt er að tilkynna leikskólanum breytta hagi og aðstæður barnanna s.s. veikindi, fjarveru foreldra og breytta hjúskaparstöðu. Óski foreldrar eftir að barn taki frí í leikskólanum, utan sumarleyfis, er það heimilt, en vistgjaldi barnsins verður ekki breytt.
Ef barn er með mataróþol eða ofnæmi verða foreldrar að skila læknisvottorði sem staðfestir hvaða fæðutegundir barnið má ekki borða. Mikilvægt er að allar upplýsingar berist til leikskólans um alvarleika mataróþols eða ofnæmis svo hægt sé að gera viðeigandi ráðstafanir. Leikskólastjóri tekur við vottorðum og upplýsingum um breytingar varðandi mataræði barns.
Í barnahópi geta alltaf orðið óhöpp eða slys. Ef slíkt kemur fyrir er strax haft samband við foreldra sem fara þá með barnið á slysadeild ef þörf er á því. Slys eru skráð í slysaskráningarkerfi, með því er hægt að fylgjast betur með því hvort slysagildrur leynist í leikskólanum. Eins upplýsum við foreldrana ef minniháttar óhapp á sér stað. Öll börn eru tryggð á meðan þau dvelja í leikskólanum.