25.06.2020
Morgundagurinn 26. júní verður síðasti skóladagurinn hjá okkur þetta skólaárið en þá fara báðar leikskóladeildirnar, Krílabær og Barnaborg, í sumarfrí til miðvikudagsins 5. ágúst. Skrifstofa Þingeyjarskóla verður einnig í sumarleyfi í júlí en við bendum á að nýtt skóladagatal fyrir skólaárið 2020-2021 lumar á ýmsum svörum. Óskum ykkur öllum gleði og hamingju þetta sumarið, eins og ævinlega, með þakklæti fyrir liðið skólaár.
22.06.2020
Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólakennara við leikskóladeildina Barnaborg. Deildin er skemmtilegur og hvetjandi vinnustaður þar sem áhersla er lögð á að hver einstaklingur hafi tækifæri til þess að hafa áhrif á umhverfi sitt og samfélag.
Frekari upplýsingar um starfið er að finna í fréttinni.
10.06.2020
Það var mikið fjör á hjóladegi í Barnaborg
24.03.2020
Í ljósi aðstæðna og síðustu frétta af útbreiðslu COVID-19, höfum við ákveðið að fara í fjarnám með alla nemendur grunnskólans.
Mikilvægt er að við komum upp rútínu varðandi námið.
Kennarar eru að skipuleggja hvernig fjarnáminu verður háttað og munu verða í sambandi við foreldra í dag með frekari upplýsingar.
Núna erum við öll að upplifa hluti sem eru nýir fyrir okkur og eflaust eigum við eftir að reka okkur á hluti sem betur mega fara. Það er og verður mikilvægt að það sé virkt samtal á milli skólans og heimilinna. Kennarar munu með einum eða öðrum hætti hafa daglegt samband við heimilin.
Þetta kostar heilmikið samstarf allra í skólasamfélaginu og munum við kappkosta að gera þetta eins vel og við framast getum.
Allt saman er þetta framkvæmanlegt með einum eða öðrum hætti og ég hef fulla trú á því að við eigum eftir að koma sterkari útúr þessu þegar um hægist.
Þeir foreldrar sem tilheyra svokölluðum forgangshópi og eiga börn á yngsta stigi, eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við skólann ef þeir hafa ekki tök á því að hafa sín börn heima. Við munum reyna e.o. við getum að þjónusta heimilin hvað það varðar.
Vil hrósa ykkur foreldrum, börnunum ykkar og starfsfólki fyrir það að hafa tekist á við þessa hluti af yfirvegun, jákvæðni og ró. Gott að sjá þann samtakamátt sem allir búa yfir þegar á reynir. Þetta eru skrýtnir tímar og eiga sér ekki hliðstæðu hjá okkur.
Allar ábendingar eru vel þegnar frá ykkur kæru foreldrar/forráðamenn og hvet ég ykkur að vera í sambandi nú sem fyrr.
Kveðja góð.
16.03.2020
Skólahald verður með breyttu sniði vegna tilmæla frá Almannavarnar yfirvöldum.
13.02.2020
Vegna viðvarana og veðurútlits fellur allt skólahald niður í Þingeyjarskóla föstudaginn 14. febrúar. Þetta á við allar deildir Þingeyjarskóla þ.e. leik-, grunn- og tónlistardeildir.