16.11.2021
Þingeyjarskóli auglýsir eftir leikskólakennurum við leikskóladeildina Barnaborg.
28.06.2021
Skóladagatal grunnskóladeildar Þingeyjarskóla er nú aðgengilegt hér á vefnum í gegnum flýtiflipa á forsíðu eða með því að nota slóðina: https://www.thingeyjarskoli.is/static/files/skoladagatal/skoladagatal-2021-2022b.pdf
16.06.2021
Kristjana Helgadóttir matráður eða Didda í eldhúsinu e.o. við flest köllum hana, hættir núna í vor eftir áratuga starf við stofnunina. Kristjana hóf störf við stofnun þáverandi Hafralækjarskóla haustið 1972 og hefur starfað nánast óslitið við skólann allar götur síðan. Þannig að segja má að Didda hafi verið samofin sögu skólans frá upphafi eða í þessi 49 ár sem skóli hefur verið starfræktur á Hafralæk. Það hlýtur að vera nánast einsdæmi.
14.06.2021
Þingeyjarskóli auglýsir tvö spennandi störf laus til umsóknar: Starfsmaður í leikskóladeildinni Krílabæ á Laugum í Reykjadal og stuðningsfulltrúi í grunnskóladeild Þingeyjarskóla á Hafralæk í Aðaldal. Umsóknarfrestur fyrir bæði störf er 25. júní 2021.
26.05.2021
Skólaslit Þingeyjarskóla verða með hefðbundnu sniði (að mestu) föstudaginn 28. maí kl. 16:30. Gestir eru beðnir um að vera með grímur á athöfninni eins og segir í tilkynningu frá almannavörnum: "Grímuskylda er þar sem ekki er hægt að viðhalda 2 metra nálægðarreglu". Elstu nemendur leikskóladeilda og nemendur 10. bekkjar verða útskrifaðir.
Verið velkomin að athöfninni.
Skólastjóri
21.05.2021
Þingeyjarskóli auglýsir eftir yfirmatráði við mötuneyti skólans á Hafralæk frá og með 1. ágúst 2021
Fyrir frekari upplýsingar smellið á tengilinn hér fyrir ofan.
12.05.2021
Félagsmiðstöðin Skjálfandi hélt á dögunum sitt fyrsta hugaríþróttamót Þingeyjarskóla þar sem keppt var í hinu geysivinsæla kænskuspili "Magic the gathering".
29.04.2021
Nemendur Framhaldsskólans á Laugum eru með tónlistarsýninguna Bugsy Malone í Þróttó 1. og 2. maí.
Sjá meðfylgjandi auglýsingu.
21.04.2021
Nemendur miðstigs Þingeyjarskóla ásamt nemendum 1. bekkjar frumsýna leikritið Glanni glæpur í Latabæ kl. 16:00 í dag. Höfundur leikritsins er Magnús Scheving og Karl Ágúst Úlfsson samdi söngtexta og Máni Svavarsson lögin.